Passið ykkur þær eru komnar!!! Randaflugurnar eru komnar og eru nú í hverjum runna á hverju horni, ég fæ alltaf hjartaáfall þegar ég heyri í þeim

er samt ekkert hrædd við þær sko! það er bara svo taugatrekkjandi þegar þær laumast aftan að manni og byrja að suða í eyrun á manni.... það er ekki kúl

Anyway... næstu tvær vikur verð ég að læra, ferilmöppur, ritgerðir og próf framundan, þannig að ekki hika við að trufla mig, ég verð eflaust að gera eitthvað álíka afkastamikið og að lakka á mér táneglurnar eða þrífa lyklaborðið. Er alltaf með rosa fínar neglur í próf undirbúningum, merkilegt hvað maður er góður í að finna sér eitthvað annað að gera þegar maður á að vera að læra undir próf!

peace out
Ostatungl